Jæjæ, verður
maður ekki að fara að nota þetta blogg
eitthvað....
Ég er bara búinn
að vera svo klikkað upptekinn uppá síðkastið í náminu.
Annars var ég að
klára fyrsta projektið mitt síðastliðinn föstudag sem auðvitað var
staðið með mikilli snilld. Helgin fór síðan í multiplayermót sem
við settum upp heima og svo náttúrúlega bakstur og búningaleit
fyrir Rúsfestina (2daga ferð með industri- og arkitekt design
línunum þar sem allir áttu að koma með kökur og mæta með
sjóræningjabúninga).
Við Hrannar
náttúrulega bökuðum og fórum í búningaleit á sunnudeginum …… Já..,
bakstur og multiplayer fer ekki vel saman en eftir margra tíma
bakstur varð útkoman stórbrunnin hjónabandssæla og hráar muffins.
Ekki gekk búningarleitin betur hjá okkur en við fórum í dreisler í
leit að einhverju sjóræningjalegu og komum svo heim með
lambhúshettu og indíánaslæðu.
Þetta slapp nú
samt nokkur veginn fyrir horn og ferðin var helvíti fín og maður
náði að kynnast helling af dönum….
Ferðin byrjaði
t.d. með ”speed dating” í rútunni svo maður náði alveg 10deitum á
leiðinni á staðinn og svo endaði ég í herbergi með 3 gellum frá
arkitekt og design.
En eins og gengur
og gerist í svona ferðum, þá komu náttúrulega fyrir nokkur óhöpp
….. ein stelpan datt eitthvað og handleggsbrotnaði á 3 stöðum ….
Einn endaði í gegnum
glugga í sjóræningjaleiknum og þurfti að sauma
nokkur spor ….. Annar dó áfengisdauða úti og endaði með því að
maurar voru byrjaðir að éta á honum andlitið….. Svo fékk einhver
paranoju og var handviss um að barinn væri að springa sem olli
miklum usla á meðal allra hinna sem voru náttúrulega á sneplunum
líka ……..
Annars var ég
furðulega stilltur þessa ferðina en komst þó að því að
maður segir ekki ...”vent, jeg skal lige “kneppe” mine
bukser” þegar maður er á klóstinu og verið er að
banka...
En já, ég ætla að
fara að leggja mig aðeins þar sem lítið var sofið í rústúr ....
yfir og út frá danaveldi .....